Ég útbjó minningar ramma í fæðingarorlofinu 2015 fyrir Maísól & þykir endalaust vænt um hann.
Ég ákvað svo að búa til eins fyrir Maron til að eiga alla þessa hluti á sama stað.
Ramminn er úr IKEA & heitir RIBBA – En svo er ég með :
Myndir af þeim
Sónarmynd
Miði úr kynjasónar
Fæðingarvottorð
Armband af fæðingardeildinni
Fyrstu snuddurnar
Hárbandið sem Maísól var með í skírninni sinni
& Slaufan sem Maron var með í skírninni sinni
En ég notaði hvítt karton (þykkan pappír) í bakið á rammanum & límdi allt með double tape-i – það fæst í öllum föndurbúðum. Einnig er hægt að líma snuddurnar með tonnataki eða límbyssu.
Eins & ég segi þá þykir mér ekkert smá vænt um þetta, en ramminn fær að standa í hillunum í herbergjunum þeirra <3
*Þessi færsla er ekki kostuð eða unnin í samstarfi*