solrundiego.is
  • Heim
  • Börnin
  • Heimilið
  • Húsráð
  • Lífið & tilveran
  • Matseðlar
  • Meðgangan
  • Uppskriftir
  • Heim
  • Börnin
  • Heimilið
  • Húsráð
  • Lífið & tilveran
  • Matseðlar
  • Meðgangan
  • Uppskriftir

solrundiego.is

BörninLífið & tilveranVeislur

Afmæli Maísólar

Sólrún Diego August 13, 2017
Afmæli Maísólar

Loksins fékk Maísól afmælisveisluna sína en hún varð 2ja ára 13.júlí þegar við vorum á Ítalíu. Hún er mikið búin að spyrja út í afmælið enda farin að hafa vit fyrir þessu öllu saman. Hún fékk reyndar afmæli í leikskólanum áður en sumarfríið byrjaði og sú var ánægð með sig! 😀

 

Í fyrra héldum við fyrsta barnaafmælið og það gekk ekki eins og planað var. Það var alltof mikið af fólki í of litlu rými og við Frans náðum ekki að njóta þess að vera með fólkinu okkar, bæði á haus að reyna græja og gera.

 

Ég ákvað eftir það afmæli að ég ætlaði að gera þetta allt öðruvísi með næsta afmæli. Ég til dæmis róaði mig algjörlega á veitingunum og bauð ekki uppá 100 tegundir af kökum og kræsingum sem mér fannst mikið betra. Við keyptum hamborgara og pulsur og byrjuðum að grilla á slaginu 2 þegar afmælið byrjaði. Þannig um leið og fólk fór að tínast inn fóru allir út í garð og fengu sér að borða. Þegar allir voru búnir að borða sungum við afmælissönginn og þeir sem höfðu smá pláss eftir fengu sér köku. Í fyrsta skipti á ævinni bakaði ég ekki fyrir afmæli en ég hef alltaf haft gaman af bakstri og bakað mikið í gegnum tíðina. Ógleðin er ennþá að bögga mig svo ég ákvað að kaupa allt og ekki græja neinn mat sjálf svo ég gæti notið sem mest með okkar fólki. Sé alls ekki eftir því.

 

Eftir grill og kökur buðum við krökkunum upp á ís en við fengum lánaðan hoppukastala hjá Camillu og Rabba sem var algjör snilld fyrir litlu krakkana og þeir eldri fengu trampólínið út af fyrir sig. Það rættist úr veðrinu og var þetta bara yndislegur dagur í alla staði.

 

Þið sem eruð að fara halda afmæli í fyrsta skipti er mitt tips til ykkar að vera með grill eða súpu fyrir fólkið og síðan 1-2 tegundir af kökum í desert, það sparar tíma og hellings stress að eitthvað sé að klárast. Enda situr maður uppi með mat fyrir 100 manns eftir slíkar veislur að mínu mati. Okkur fannst síðan henta vel að bjóða bara þeim sem við erum í mestum samskiptum við. Við buðum s.s. bara vinum sem eru með börn og síðan nánustu fjölskyldu sem við erum í miklu sambandi við og var það æði enda erum við umvafin yndislegu fólki ! <3

 

Kökuna fengum við hjá Sætum syndum en ég sendi þeim skilaboð með mynd í huga sem okkur langaði að fá. Þegar við fórum að sækja kökuna var ég í sjokki hvað kakan var flott og alveg eins og ég hafði beðið um! Ég er ekki mikið fyrir sykurmassakökur og bað ég bara um súkkulaði köku fyrir 15-20 manns með kremi og fengum við allar óskir okkar uppfylltar og vorum ekkert smá ánægð með kökuna. Hún var ekki bara falleg heldur ekkert smá góð sem skiptir mikið meira máli að mínu mati! 😀

 

Allt skrautið pantaði ég hjá Partý vörum og sótti síðan í búðina til þeirra í Garðabæ. Þær mæðgur sem eru með þessa búð eru yndislegar og fullar af hugmyndum sem nýtast mörgum. Þegar ég kom að sækja dótið sýndu þær mér allt sem þær höfðu í huga og notaði ég helling af þeirra hugmyndum. Svona persónuleg þjónusta finnst mér skipta miklu máli enda ekki í fyrsta skipti sem ég versla við þær.

 

Meiriháttar dagur í alla staði <3

*Kökuna & Skreytingarnar fengum við í gjöf frá Partý Vörum & Sætum Syndum*

Afmæli Maísólar was last modified: March 31st, 2018 by Sólrún Diego
12 athugasemdir
43
Facebook Twitter Google + Pinterest
Sólrún Diego

fyrri færsla
Ný svefnrútína
næsta færsla
Sveppasósa uppskrift

You may also like

MERKTAR SNUDDUR

August 6, 2017

Ný Gleraugu

August 30, 2017

Að koma í veg fyrir lús

September 4, 2017

Fæðingarsaga – Maron

February 26, 2018

Veisluhugmyndir

March 21, 2018

FERMINGAR TO DO LISTI

January 30, 2018

Blautþurrkur & Box

August 22, 2017

SNUDDUR

September 22, 2019

MINNINGAR RAMMI

September 23, 2019

Leikskóla undirbúningur

August 7, 2018

12 athugasemdir

Hermina August 13, 2017 - 22:16

Flott… en má ég spurja hvaðan er dragtin sem þú ert í ? Bara geggjuð 👌

Reply
Sólrún Diego August 13, 2017 - 22:41

Takk elskuleg en hún er úr Bershka 🙂

Reply
Rut R. August 13, 2017 - 22:37

Hvaðan er gráa dressið þitt? Súper kúl!!! 🙂

Reply
Sólrún Diego August 13, 2017 - 22:41

Dragtin er úr Bershka 🙂

Reply
Jana Lind August 14, 2017 - 00:12

Sjúklega flott fjölskylda 😎

Reply
Sólrún Diego August 14, 2017 - 13:46

<3

Reply
Díana August 20, 2017 - 22:31

Sæl kæra Sólrún til hamingju með fallegu stúlkuna þína en mætti ég spyrja hvar þú fékkst spegilinn sem sést þarna bak við ? 🙂

Reply
Sólrún Diego August 21, 2017 - 18:01

Hæhæ
Takk fyrir elskuleg! <3
Spegilinn pöntuðum við frá Íspan.

Reply
Kristín August 23, 2017 - 15:54

Vá ekkert smà flott ! 😍❤️

Mætti ég spyrja, hvar fékkstu vasan sem bleiku rósirnar eru í 😍

Reply
Sólrún Diego August 24, 2017 - 14:42

Takk elskuleg, vasinn er úr Söstrene Grene 🙂

Reply
Sigrún September 14, 2017 - 14:22

Hvaðan er matarstóllinn hennar Maísólar :)?

Reply
Sólrún Diego September 18, 2017 - 00:28

Hann er úr Húsgagnaheimilinu 🙂

Reply

Leave a Reply to Sólrún Diego Hætta við svar

Nýjustu færslur

  • HÁRUMHIRÐA

    November 25, 2019
  • INDVERSKUR BORGARI

    November 15, 2019
  • BRÚÐKAUP

    October 22, 2019
  • PASTA Í RJÓMASÓSU

    October 13, 2019

Instagram

No images found!
Try some other hashtag or username

Hafa samband

Facebook Instagram Email