Þessi skál hefur verið mjög vinsæl á netinu en mig langaði að gera hakkið eitthvað aðeins meira næs en bara steikja það eins & maður er vanur í öðrum réttum. Við gerum sósu í potti sem við blöndum við hakkið þegar það er orðið full eldað & það gerir þetta 10x betra! Ég gæti borðað þessa skál oft í viku!
Hot & sticky sósa
2 msk púðursykur
2 dl soyja sósa
2 msk teriyaki sósa
2 msk sesam olía
2 hvítlauks geirar
Sá engifer
Chilly paste (eða eh sterkt)
Ég byrja á sætum kartöflum í ofninum
Steiki svo hakkið á pönnu, steiki það vel
Þegar hakkið er tilbúið helli ég sósunni yfir & steiki aðeins lengur
Sker niður grænmeti eftir smekk
Set eina skeið af kotasælu ofan á skálina þegar allt er komið í
& enda á hot honey eða spicy mayo yfir kotasæluna
Hægt að nota það sem ykkur þykir gott en hakkið er 10/10!



