Ég notaði alltaf uppskrift frá vinkonu minni Gígju sem er til á netinu en með árunum hef ég aðeins aðlagað hana að mér breytt aðeins & bætt
Ég geri heilan bakka af kjúkling & nota 2-3 sætar & það er fyrir okkur 4
Það sem þarf:
Kjúklingabringur
2-3 Sætar kartöflur
1/2 Rauðlaukur
Hvítlaukur
Kókosmjólk
Fetaostur (má sleppa)
Rifinn ostur
Döðlur
Krydd eftir smekk
Ég byrja á því að hita ofninn á 180°c
Sker sætu kartöflurnar í tvennt
Set kartöflurnar á bökunarpappír inn í ofn, má setja smá olíu á þær
Kartöflurnar eru í ofninum í allavega klukkutíma
Ég byrja oft á að setja þær inn í 30 mín áður en ég byrja á kjúklingnum
Svo steiki ég lauk & hvítlauk á pönnu
Bæti svo kjúklingnum við í þunnum bitum & krydda með kjúklingakryddi
Þegar kjúklingurinn er tilbúin (ekki of elda hann) bæti ég kókosmjókinni við
Krydda meira eftir smnekk
Þegar kartöflurnar eru orðnar tilbúnar tek ég þær út
Skef innan úr þeim með skeið, en bara toppinn af viljum hafa kartöflu ennþá í botninn
Blanda kartöflunum á pönnuna með lúku af rifnum osti, dölum & feta osti
Leyfum því að malla á pönnunni
Svo er blandan á pönnunni sett ofan í sætu kartöflunar sem er búið að skafa úr
Rifinn ostur settur yfir & aftur inn í ofn þar til osturinn er eins & þú vilt hafa hann
Ég ber svo pönnuna með restinni af blöndunni fram á borðið & fólk bætir í kartöfluna eftir smekk
Ég ber þetta fram með salati & sýrðum rjóma
ATH þessi uppskrift tekur alveg allavega klukkutíma, því kartöflurnar leyna á sér
en vel þess virði að prufa!




