Uppskriftir

Gyros

Gyros brauð
Það er hægt að nota allskonar brauð, bara eftir smekk.
Við höfum bæði notað pizzakúlu & skipt henni í 2-3 parta & notað svoleiðis deig eða búið til okkar eigið deig

Besta uppskriftin sem við höfum notað fyrir brauð er þessi :
420 gr hveiti
2 tsk þurrger
1 1/2 tsk salt
1 1/2 tsk sykur
3 dl volgt vatn

Öllu blandað saman í skál & hnoðað í ca 5 mín
deigið látið hefast í 1-2 klst.

Skiptið deiginu í ca 5-6 kúlur
fletjið út & steikið á heitri pönnu upp úr smjöri

Gyros Jógúrt sósa
Hér er aftur hægt að nota sósu að eigin vali, jafnvel pítusósu fyrir þá sem vilja, en þessi uppskrift af jógúrsósu hefur verið himnesk með þessari uppskrift

Grísk jógúrt
Sítrónusafi
Hvítlaukur
Gúrka skorin smátt
Kóríander eða dill
Salt & pipar

Við notum svo grænmeti eftir smekk ásamt kjúkling eða hvaða kjöti sem er.
Mér finnst geggja að nota afgangs kjöt sem ég á til í þennan rétt.
En besta kjötið hingað til hefur verið kjúklingur í raspi, fá svona Kfc kjúlla í þetta sem hægt er að gera sjálfur eða kaupa frosinn í búð.

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *