Að hafa nóg fyrir stafni og dagana skipulagða með börn í sumarfríi auðveldar manni helling og gerir fríið ennþá betra. Í fyrra gerði ég gott plan fyrir dagana sem við Maísól vorum saman í fríi og voru það dásamlegur tími.
Ég fann það að ef ég var ekki búin að plana neitt þá var ég mikið tregari að skella mér út með hana að gera eitthvað og endaði oftar en ekki að kíkja í búðir sem við hvorugar nenntum!
Eins og ég hef oft sagt áður hefur það gefið mér helling að hafa unnið með börnum og kemur þá sérstaklega að góðum notum yfir sumarið að nýta staðina sem við fórum með leikjanámskeiðin á yfir sumarið.
Fyrir þetta sumar gerði ég plan með 4 vikum og fyllti inn þar mismunandi afþreyingu fyrir okkur að gera og er ég auðvitað með það í huga að geta tekið Maron með svo við getum ekki gert alveg allt af listanum okkar þetta sumarið en það kemur sumar eftir þetta sumar og nýtum þá listan til fulls ! 😀
Ég á mikið af vinkonum sem eru einnig með leikskólabörn og hittir því skemmtilega á að leikskólarnir hjá öllum er lokað á svipuðum tímum og fékk ég þær í að taka frá nokkra daga til að hittast með krakkana og leyfa þeim að gera eitthvað skemmtilegt saman.
Sumarið hefur ekki ennþá látið sjá sig þrátt fyrir að það sé kominn 4.júlí en ég tók þá ákvörðun að láta ekki veðrið stoppa okkur og fara sama hvernig viðrar eftir planinu sem við settum okkur og bara klæða okkur eftir veðri! 😀
En hér er listinn sem ég gerði fyrir þetta sumar & við nýttum í okkar plan :
Leikvellir
Salaskóli
Langholtsskóli
Norðlingaskóli
Hlíðaborg
Örvasalir
Sundlaugar
Salalaug
Álftaneslaug
Vatnaveröld
Ásvallalaug
Borgarnes
Lágafellslaug
Útivera
Heiðmörk
Nauthólsvík
Hellisgerði
Índjánagil
Tjörnin í Kóp.
Fjöruferð í Kóp.
Fjöruferð í Grb
Fjöruferð í Krýsuvík
Hljómskálagarðurinn
Húsdýragarðurinn
Hraðastaðir
Slakki
Annað
Strætóferð
Brúðubíllinn
Leikhópurinn Lotta
Árbæjarsafn
Mála með vatni í garðinum
Leika með slönguna í garðinum