170 gr hnetusmjör
70 gr haframjöl
40 gr hunang
blandað saman í skál & þjappað í muffinsform, plötu eða eldfastmót
Mér finnst best að nota mjúkt hnetusmjör en annars er hægt að hita það aðeins
svo það blandist betur. Ég nota H-Berg hnetusmjörið
Súkkulaði eftir smekk brætt & helt yfir
Mér finnst gott að setja smá gróft salt fyri súkkulaðið
Sett í frysti eða kæli & geymt kalt.
Ég geri oftast tvöfalda uppskrift, því þetta fer mjög fljótt.
Elska geta gripið í 1-2 bita þegar nammiþörfin kemur




