Það þekkja það flestir í kringum börn & matartíma að það verður allt skítugt á no time, þá meina ég allt!
Stundum skil ég ekki hvernig sumar slettur hafa getað skeð en það er annað mál!
Ég hef prufað nokkrar aðferðir við að þrífa strappana/böndin í matarstólnum, en Maísól var í þessum stól á undan Maroni & var ekkert minna subbuleg haha! Ég hef bæði skrúbbað þá eins og brjálæðingur, sett þá í þvottavélina & í uppþvottavélina.
Mér finnst virka lang best fyrir mig að setja þá í uppþvottavélina – tekur engan tíma & finnst þeir koma lang best úr henni. Það er kannski betra að nefna það að plastið sem er fast í ströppunum má ekki fara á mjög háan hita þannig gott er að skoða hitastillingarnar mjög vel á vélinni áður en hún er sett af stað & sama á við um þvottavélina.
En strapparnir fara nokkrum sinnum í mánuði í uppþvottavélina hjá okkur & elska ég að því fylgi engin læti eins og í þvottavélinni. Ég set þá svo á ofninn eftir vélina og þeir þorna á no time!
*Þessi færlsa er ekki kostuð eða unnin í samstarfi*