solrundiego.is
  • Heim
  • Börnin
  • Heimilið
  • Húsráð
  • Lífið & tilveran
  • Matseðlar
  • Meðgangan
  • Uppskriftir
  • Heim
  • Börnin
  • Heimilið
  • Húsráð
  • Lífið & tilveran
  • Matseðlar
  • Meðgangan
  • Uppskriftir

solrundiego.is

Höfundur

Sólrún Diego

Sólrún Diego

    Fæðingarsaga – Maron
    BörninMeðgangan

    Fæðingarsaga – Maron

    Sólrún Diego

    Mig langaði að deila með ykkur fæðingarsögunni minni þar sem ég veit að mörgum finnst gaman að heyra allskonar tengt fæðingu. Mér sjálfri finnst mjög gaman að heyra allskonar sögur enda magnað að koma barni í heiminn.

    Nú var þetta mín önnur fæðing og gekk hin fæðingin mjög hratt fyrir sig og var ég pínu stressuð fyrir því að það myndi gerast aftur en oft er talað um að seinni fæðingar geti gengið hraðar fyrir sig en alls ekki alltaf samt. Eins og þið sem hafið fylgt mér lengi vitið að ég er ekki mikið fyrir óvissu og hefði helst viljað geta planað hvenær hann kæmi reyndi ég eins og ég gat að spá ekki í hvernig þetta myndi fara og mér fannst það hjálpa mér helling í að minnka stressið og kvíðann.

    En að fæðingunni, ég vaknaði kl.03:00 aðfaranótt laugardags 24.febrúar með smá verki sem ég var alveg viss um að væru fyrirvara verkir og ekkert væri að gerast. Ég náði að sofna til 08:00 og vaknaði þá aftur með eins verki sem stóðu yfir í 2 tíma en duttu svo fljótt niður.  Planið þennan laugardaginn var þannig að Maísól færi til mömmu eftir hádegi og fengi að gista hjá henni í verðlaun fyrir að vera hætt með bleyjuna og ákváðum við bara að halda okkur við það.

    Þegar Maísól var farin í pössun til mömmu fórum við Frans út um kl.15 og fengum okkur að borða og byrjaði ég þá að fá mikla verki með reglulegu milli bili. Við drifum okkur heim og tókum því rólega yfir mynd í um klukkutíma en þá voru verkirnir orðnir mjög miklir og alltaf að styttast á milli. Rétt yfir 16:00 hringi ég niður á deild og vildi láta þær vita af mér og sagði þeim að fyrri fæðing hefði nánast átt sér stað á ganginum hjá þeim og að ég væri orðin frekar stressuð fyrir því að þetta myndi fara gerast en samt 8-9 mínútur á milli hjá mér.

    Hún sagði mér að koma bara þegar ég vildi en að það væri alltaf leiðinlegt að vera sendur heim og að staðan á spítalanum væri þannig að það gæti verið að þær vildu senda mig heim ef það væri ennþá langt á milli. En eins og síðast á nokkrum mínútum byrjaði styttast mikið á milli verkja og ákváðum við að drífa okkur bara niður eftir og láta athuga stöðuna.

    Þegar við komum niður á spítala um 17:30 fengum við yndislegan nema sem ljósmóður, henni fannst ég full róleg miðað við sutt á milli verkja og ákvað að athuga útvíkkunina og kallaði eftir aðstoð við að vera viss um að ég væri komin með fulla útvíkkun sem reyndist vera. Við vorum svo færð yfir í fæðingarstofu rétt yfir 18:00 og kom hann í heiminn um 40 mín seinna eða 18:59.

    Fæðingin sjálf hefði ekki getað gengið betur, eftir þriðja rembinginn missti ég vatnið framan í nemann sem kippti sér lítið upp við það enda kom kollurinn um leið haha! Og svo í fjórða rembing eftir að kollurinn var kominn fékk ég að taka á móti honum sjálf sem er eitt það magnaðasta sem ég hef upplifað!

    Litli tók síðan brjóstið um leið og gekk svo vel að hann var að brjóstinu í 2 tíma áður en hann var vigtaður og mældur en hann var 12,5 mörk eða 3170gr og 51cm. Við fengum síðan að fara heim eftir 6 tíma eða um miðnætti eftir læknisskoðun. En ástæðan fyrir því að við fórum svona snemma heim var sú að allt gekk mjög vel og við vildum frekar fara heim heldur en að deila herbergi með öðrum yfir nóttina.

    Ég hlakka til að leyfa ykkur að fylgjast með okkur fjölskyldunni í framtíðinni <3

    Hér er hægt að lesa fyrri fæðingarsögu.

     

    Fæðingarsaga – Maron was last modified: September 7th, 2019 by Sólrún Diego
    February 26, 2018 0 athugasemd
    151 Facebook Twitter Google + Pinterest
  • Uppskriftir

    Brauðstangir

    Sólrún Diego February 11, 2018

    Um helgina prufaði ég mig áfram með brauðstangir og þá bara úr því sem var til hérna heima. Þetta gæti…

    10 Facebook Twitter Google + Pinterest
  • Börnin

    Spítalataska

    Sólrún Diego February 7, 2018

    Á fyrri meðgöngu var ég ekkert að stressa mig á að skrifa hjá mér hvað ég ætlaði að taka með…

    11 Facebook Twitter Google + Pinterest
  • Lífið & tilveranVeislur

    FERMINGAR TO DO LISTI

    Sólrún Diego January 30, 2018

    Ég fann gamla skjalið síðan bróðir minn fermdist og ætla deila listanum sem við mamma notuðum vegna fjölda fyrirspurna. Vona…

    3 Facebook Twitter Google + Pinterest
  • Lífið & tilveran

    PARÍS

    Sólrún Diego January 29, 2018

    Við Frans vorum að fara í annað skipti til Parísar saman og gæti ég ekki mælt meira með þessari borg,…

    1 Facebook Twitter Google + Pinterest
  • Uppskriftir

    Brún lagkaka

    Sólrún Diego December 19, 2017

    ATH þessa þarf að gera í hrærivél – Til eru aðrar uppskriftir af hnoðuðum   Hráefni 500 gr smjörlíki, mjúkt…

    11 Facebook Twitter Google + Pinterest
  • Lífið & tilveran

    Jólahefðir

    Sólrún Diego December 4, 2017

    Ég tók smá spjall um að skapa sínar hefðir og læra njóta yfir hátíðarnar of fékk ég mjög góð viðbrögð…

    9 Facebook Twitter Google + Pinterest
  • Matseðlar

    Matseðill

    Sólrún Diego October 29, 2017

    Matseðill vikan 30. – 5.nóvember mánudagur Plokkfiskur & rúgbrauð   þriðjudagur Thailenskur kjúklingaréttur   miðvikudagur Út að borða & leikhús…

    4 Facebook Twitter Google + Pinterest
  • Uppskriftir

    Kókoskúlur

    Sólrún Diego October 24, 2017

    Ég elska einfaldar og fljótlegar uppskriftir en kókoskúlurnar eru einmitt eitt það auðveldasta í bakstri. Það þarf ekki einu sinni…

    22 Facebook Twitter Google + Pinterest
  • Matseðlar

    Matseðill

    Sólrún Diego October 15, 2017

    Matseðill vikan 16. – 22.oktober   mánudagur Steikur fiskur, kartöflur & grænmeti þriðjudagur Fajitast með hakki, sósu & grænmeti miðvikudagur…

    1 Facebook Twitter Google + Pinterest
Nýjar færslur
Eldri færslur

Sólrún Diego

Tuttugu & níu ára, tveggja barna móðir & eiginkona sem hefur mikinn áhuga á öllu sem tengist heimilinu & lífsstíl !

Vinsælast

  • 1

    Markmið & Skipulag

    August 31, 2017
  • 2

    Bananabrauð

    August 10, 2017
  • 3

    Kókoskúlur

    October 24, 2017

Instagram

Hafa samband

Facebook Instagram Email