Uppskriftir

Cesar salat

Þetta salat er svona my go to máltíð þegar ég nenni ekki að elda.
Ég elska salöt & allt sem er svona létt.

ÞAÐ SEM ÞARF :
Kjúklingur
Pasta
Kál
Gúrka
Paprika
Brauðteningar
Parmessan
Sósa

AÐFERÐ :
Kálið, gúrkan & paprikan skorið niður – Hægt að hafa hvaða grænmeti sem er.
Sjóða pasta & egg.
Kjúklingurinn steiktur & vel kryddaður eftir smekk.
brauðteningunum, parmessaninum & sósunni skellt á toppinn & allt reddý!

Ég nota alltaf sömu sósuna & sömu brauðteningana en mér finnst það gera salatið. Teningarnir fást í Krónunni & sósuna hef ég fengið í Hagkaup & Bónus.

Einnig er gott að útbúa dressinguna sjálfur með :
Majó, sýrðum rjóma, sinnepi, salti, pipar, smá olíu & hræra vel saman


*Þessi færsla er ekki kostuð eða unnin í samstarfi*