Ég elska haustið & þá sérstaklega þegar það kemur að klæðnaði. Mér finnst fátt skemmtilegra en að draga fram jakkana & kápurnar mínar sem hafa ekki verið notaðar í langan tíma – það er svipuð tilfinning & að kaupa sér nýjar flíkur!
Ég elska að fá outfit inspo á netinu og skoða það mikið en hef aldrei deilt neinu svona áður. Mér finnst skemmtilegast að skoða inspo af flíkum sem ég á til & sjá mismunandi útfærslur af flíkum sem ég á inni í skáp svo maður sé ekki alltaf að kaupa sér nýjar flíkur.
Eins & kannski sést á mínum inspo myndum þá langar mig í rauðan blazer eða kápu, beige litaðan oversized blazer & uppháar mom jeans…
*Þessi færsla er ekki kostuð eða unnin í samstarfi*