Uppskriftir

Sveppasósa uppskrift

Þegar ég var yngri miklaði ég alltaf fyrri mér að búa til sósur og þorði aldrei að prufa mig áfram. Þannig þið sem eruð eitthvað hrædd við að prufa endilega prufið þessa uppskrift hún á ekki að geta klikkað!

Sveppasósa

1 sveppasósubréf frá Knorr

1/2 laukur

5-7 sveppir

1/2 stór rjómi

1 msk smjör

Salt & pipar

1-2 tsk rifsberjahlaup

Gott að setja smá ost með ef hann er til eins og td Mexikó eða sveppaost

 

 

Aðferð :

Steikja lauk og sveppi

Blanda sósubréfinu við & því sem á að blanda með bréfinu

Bæta rjómanum og ostinum við og láta bráðna.

Krydda

& enda svo á sultunni þegar hún er búin að sjóða.

Gott er að leyfa henni að sjóða í 10-15 min.

ATH að ekki er nauðsynlegt að steikja lauk og sveppi með í sósuna og geri ég það bara ef ég hef nægan tíma og til að fá hana alveg geggjaða! Einnig bæti ég sósulit við til að fá hana dökka en það er algjörlega smekksatriði 🙂

 

*Þessi færlsa er ekki kostuð eða unnin í samstarfi*

2 Comments on “Sveppasósa uppskrift

  1. Það er svo gaman að fylgjsat með þér Sólrún mín❤❤❤❤❤
    Og innilegar hamingjuóskir með litla krílið sem er á leiðinni ❤
    Og hjálpi mér hvað hún Mæsól er falleg og mikið krútt ❤
    Kærleikskveðja til ykkar 😚❤

Leave a Reply to Sólrún Diego Cancel reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *