Ég skil ykkur mjög vel að biðja mig um uppskriftina af þessum rétta enda er hann guðdómlegur!! Það sem ég elska við hann er hversu einfaldur og fljótlegur hann er! Ég gerði hann fyrst fyrir rúmri viku síðan og setti bara það sem ég átti til í skápunum í og það kom líka svona vel út 😀 !
Það sem ég nota er:
Tortilla kökur
Hakk
Ostasósa
Salsasósa
Kotasæla
Sýrður rjómi
Rifinn ostur
Svart doritos
Ég byrja á því að steikja hakkið en ég steiki það mjög vel svo það verði alls ekki slepjulegt 🙂
Ég krydda hakkið aðeins en það sem ég notaði núna var Cayenna pipar.
Ég set síðan stóra medium salsasósu út á hakkið á samt lítilli dós af kotasælu.
Ég hræri öllu saman og leyfi kotasælunni að bráðna aðeins við.
Síðan spreyja ég eldfast mót með olíu og set 2 tortilla kökur í botninn.
Ég maka síðan blöndunni yfir kökurnar og sletti vel af ostasósu yfir hakkið.
ég ríf síðan 1 tortillaköku í tvennt og set hana á milli og endurtek síðan með að setja hakkblönduna og ostasósuna yfir. Að lokum strái ég rifnum osti yfir allt saman en mér finnst ostasósa mjög góð svo ég set mikið af henni.
Þetta fer síðan inn í ofn á 200 og blástur í 5-7 mín eða þangað til að rifni osturinn er bráðinn.
Ég ber þetta síðan fram með salati og set sýrðan rjóma, ostasósu og svart doritos á toppinn, mmmmm !! 😀
**Það er líka mjög gott að setja rjómaost í botninn! 😀 **
*Þessi færlsa er ekki kostuð eða unnin í samstarfi*
2 athugasemdir
Hvernig ostasósu notar þú?
Mér finnst hún best í glerkrukkunni úr Bónus 🙂