solrundiego.is
  • Heim
  • Börnin
  • Heimilið
  • Húsráð
  • Lífið & tilveran
  • Matseðlar
  • Meðgangan
  • Uppskriftir
  • Heim
  • Börnin
  • Heimilið
  • Húsráð
  • Lífið & tilveran
  • Matseðlar
  • Meðgangan
  • Uppskriftir

solrundiego.is

Uppskriftir

Pulled pork taco

Sólrún Diego July 31, 2017
Pulled pork taco

Pulled pork taco er klárlega á top 5 listanum mínum yfir uppáhalds mat! Eins og þið mörg vitið eflaust þá elskum við mexikanskan mat og þá sérstaklega ég. Mér finnst bara ótrúlega skemmtilegt hvað maður getur leikið sér með allskonar skemmtilegt hráefni. Eins og þið vitið eflaust líka þá elska ég Bónus og aðal ástæðan fyrir því er Tex Mex deildin haha! 😀 Besta ostasósan fæst einmitt líka í Bónus! 😀

Þegar maður gerir pulled pork kjötið sjálfur er lang best að taka sem lengstan tíma í það. Þegar það heppnast sem allra best hefur Frans verið að láta það malla í 24 tíma. Við notuðum sous vide aðferðina í dag en létum kjötið vera í 6 tíma í vatni og svo malla í góðan tíma í ofni í restina.

Það er mjög gott að krydda kjötið vel áður en það er eldað og enda síðan á því að drekkja því í sósu, rífa það niður í bita og leyfa því að malla svoleiðis í lokin. ATH að það er líka hægt að elda kjötið í ofni, það er ekki nauðsynlegt að eiga sous vide tækið! Kjötið sem við notuðum var grísa hnakki. 🙂

Það er auðvitað hægt að krydda eins og maður vill en það sem við notuðum var:
1 msk púðursykur
Paprikukrydd
Hvítlaukssalt
Sinnepsfræ
Cayanne pipar

Gróft salt
Cumin
Kryddblönduna setti ég í lítinn mixer til þess að fá púðursykurinn til að blandast vel við.

Þetta er Sous vide tækið sem við fengum í jólagjöf.
Það heldur réttu hitastigi á vatninu og er ótrúlega skemmtilegt að prufa sig áfram með bæði kjöt og grænmeti. Ég mæli hiklaust með svona tæki í gjafir fyrir fólk sem hefur gaman að því að elda ! 😀
Hér fæst eins tæki og við eigum.

Kryddinu heltum við ofan í pokann áður en við settum kjötið ofan í vatnið.

Þegar kjötið var búið að vera í nokkra tíma í vatninu settum við það í eldfast mót og rifum það niður með tveimur göfflum í litla bita. Síðan er það baðað í sósu. Sósan sem við gerðum hljómar svona :
Soðið sem var í pokanum með kjötinu létum við í pott ásamt 
2 msk af púðursykri, BBQ sósu & Sriracha sósu.
Allt soðið niður og helt síðan yfir kjötið og látið malla í ca 1,5 tíma

Ég elska fá svona litlar kökur og geta sett allskonar mismunandi á þær en ekki bara eina stóra. Ég hef ekki ennþá fundið svona litlar kökur út í búð svo ég setti glas á fæti á kökuna og skar út eftir glasinu. Ég fékk þá 3 litlar úr einni stórri köku. 🙂

Það sem við höfðum með þessu var:
Sýrður rjómi
Salsa sósa
Ostasósa
Guacamole
Rifinn ostur
Kál
Gúrka
Paprika
Doritos
Mexikanst hrásalat

*Þessi færlsa er ekki kostuð eða unnin í samstarfi*

Pulled pork taco was last modified: September 19th, 2017 by Sólrún Diego
0 athugasemd
0
Facebook Twitter Google + Pinterest
Sólrún Diego

fyrri færsla
Heimagerð pizzasósa
næsta færsla
Rauðlaukssulta

You may also like

Brún lagkaka

December 19, 2017

HUMARPASTA

September 21, 2019

Fiskisúpa

July 3, 2018

Mexikó pizza

August 10, 2017

INDVERSKUR BORGARI

November 15, 2019

Mexikó lasagna

August 9, 2017

TOM KAH GAI SÚPA

September 24, 2019

Kebab

July 31, 2017

OSTAPASTA

June 20, 2018

CESAR SALAT

October 3, 2019

Skrifa Athugasemd Hætta við svar

Nýjustu færslur

  • HÁRUMHIRÐA

    November 25, 2019
  • INDVERSKUR BORGARI

    November 15, 2019
  • BRÚÐKAUP

    October 22, 2019
  • PASTA Í RJÓMASÓSU

    October 13, 2019

Instagram

No images found!
Try some other hashtag or username

Hafa samband

Facebook Instagram Email