Okkur hefur lengi langað að prufa okkur áfram með að gera góða pizzasósu. Ég hef aldrei nennt að byrja malla einhverja sósu þegar ég er að fara skella á pizzuna á föstudögum. Það sem kom mér mest á óvart var hvað þetta tók enga stund og hversu mikinn mun við fundum á bragðinu. Þetta var ótrúlega gott en við bara slumpuðum bara og notuðum enga uppskrift.
Ég ætla deila hér hvað við notuðum og nokkrum myndum.
Það sem við notuðum:
Hunts dollu af tómötum
Parmesan ost
Tómatpúrru
Pizzakrydd
Hvítlauk
pipar
Salt
Tómatarnir & púrran sett í pott & hvítlauks rifi bætt við
Parmesan osti bætt við
Látið sjóða í nokkrar mínútur
Ég hakkaði þetta niður með töfrasprota því ég vildi hafa hana þykka
Við gerðum síðan hálfmána úr pizzunni en okkur finnst best að hafa skinku, sveppi, rifinn ost, mozzarella og pizzakrydd í okkar 🙂
*Þessi færlsa er ekki kostuð eða unnin í samstarfi*