Maísól varð 3 ára á föstudaginn og héldum við uppá það í dag og heppnaðist sjúklega vel. Loksins komust flestir í kringum okkur en það hefur verið erfitt síðustu 2 ár þar sem flestir eru í sumarfríi á þessum tíma.
Það rættist heldur betur úr veðrinu og var hoppukastalinn ræstur út og trampólínið mikið notað. Við vorum með þetta sjúklega einfalt, grillaðar pulsur, mini pizzur, osta & salat og svo afmælisköku og gulrótarkökubita.
Ég sýndi aðeins frá undirbúningnum og það er alltaf áhugi fyrir því enda alltaf gaman að fá hugmyndir hjá öðrum og ég elska að vera með einfalda en fallega hluti í veislum. Ég ætla deila með ykkur myndum hér fyrir neðan og skrifa undir hvaðan allt er og vona að það nýtist einhverjum.
Ílátin undir drykki eru úr Ikea & var ég með vatn í öðrum og Ribena í hinum.
Glösin & Rörin eru frá Partý Vörum.
Flöskurnar eru Froosh flöskur.
Diskarnir frá Partý Vörum.
Kórónurnar frá Ebay
& servíetturnar frá Zazzle.co.uk
Í þessum litlu töskum var ég með ávaxta nammi sem Maísól gaf krökkunum.
Töskurnar & skrautið er frá Ebay og Servíetturnar frá Zazzle.co.uk
Kakan sló þvílíkt í gegn enda sturluð !!
En kakan er frá Sætum Syndum & höfum við fengið kökur frá þeim síðustu 2 ár & alltaf verið sjúklega góðar !
Kertin eru úr Hagkaup.
& ballerínu topperinn er af Ebay en ég límdi pilsið sjálf á.
Blöðru veggurinn og þristurinn er frá Party Vörum.
Það var yndislegt að halda uppá afmæli með Maron litla með okkur og get ég ekki beðið eftir hans afmæli í febrúar! 😀
*Kakan frá Sætum Syndum & Skrautði frá Partý Vörum var unnið í samstarfi*