Við gerum mikið kjúklingaborgara enda finnst mér hann 10x betri en venjulegur!
Það virðist frekar mikið bras að búa hann til en eftir nokkur skipti er þetta ekkert mál
Það sem þarf í kjúklinginn:
Kjúklingabringur
Hamborgarabrauð
Hveiti
Egg
Brauðraspur
Salt & pipar
Paprikukrydd
Hvítlaukskrydd
Steikingarolía
Aðferð:
– Kjúklingabringur skornar í tvennt
– Velt upp úr hveiti krydduðu með salti, pipar, papriku- & hvítlaukskryddi
– Kjúklingnum svo velt upp úr pískuðu eggi
– Svo ofan í brauðrasp (hægt að kaupa eða gera með ritz kexi, doritos eða öðru)
– Steikingarolían hituð vel, passa sig vel á olíunni – gott að setja einn bita ofan í til að sjá hvort hún sé orðin nógu heit
– Kjúklingurinn settur ofan í olíuna & eldaður þar til hann er orðinn stökkur & gullbrúnn
– Kjúklingurinn settur svo í ofn eða á grill í 15 mín til að klára eldast
– Okkur finnst best að gera þetta úti á grilli
Meðlæti
– Ég geri oftast trufflumæjó með þessu en það er mjög einfalt, bara hræra saman mæjó, truffluolíu & salti saman, það er líka sjúklega gott með frönskum
– Franskar með en vöfflufranskar finnst mér bestar með þessu
– Sætur laukur, ég elska sætan lauk með taco, pulled pork & hamborgara
það er hægt að gera allskonar útfærslur en mér finnst einfaldast að skera niður rauðlauk, setja hann í litla pönnu inn í ofn eða á grilli með olíu eða smjöri & þegar hann er orðinn mjúkur þá set ég 1 msk ofan í pönnuna & leyfi því að malla í smá – þá er kominn sætur & mjúkur laukur sem er góður með öllu!
Við gerum líka hrásalat þegar við nennum en eina sem er leiðinlegt við það er að maður þarf að kaupa svo stóra kálhausa & nýtir þá oft illa – uppskriftin af hrásalatinu má finna hér.