Við erum mikið ísfólk & elskum góðan sjeik!
Það er alltaf gaman að prufa sig áfram með nýjar uppskriftir en þessi klikkar ekki & er lang vinsælust
Í svona uppskrift fer alveg slatti af ís, það kom mér kannski mest á óvart en mér finnst Krónu vanilluísínn bestur & lang ódýrastur
Það sem þarf:
Vanillu ís
Nýmjólk
Súkkulaði íssósa
Hnetu topps hentur
Hnetusmjör (má sleppa)
Þreyttur rjómi
Aðferð :
– Ég byrja á því að setja nýmjólk í blender
– Svo set ég ca heila öskju af krónu ísnum til að fá sjeik fyrir 4
– Ég set svo 1/2 brúsa af súkkulaði sósu í blenderinn
– 1 msk af hnetusmjöri (2 msk fyrir þá sem elska hnetusmjör eða sleppa)
– Blanda vel & bæti mjólkinni í eftir áferð, sumir vilja þykkan aðrir þynnri
– Ég set smá af súkkulaði sósu í glasið áður en ísinn fer fyrir skemmtilegt look
– Sjeikinn í glasið, þeyttur rjómi ofan á & hnetu topps hnetur á toppinn (má sleppa)