Það sem þarf:
200 gr smjör (stofuhita)
200 gr sykur
450 gr hveiti
100 gr kókosmjöl
200 gr súkkulaði
1 1/2 dl mjólk
3 egg
1 msk lyftiduft
1 tsk vanilludropar
Aðferð:
– Egg & sykur hrært saman þar til létt & ljóst
– Smjör, hveiti, mjólk, lyftidufti, vanilludropum, kókosmjöli blandað saman við & hrært
– Súkkulaðið skorið niður & bætt við með sleikju í lokin
– Deigið sett á bökunarpappír (stærð á tebollum eftir smekk, ég hef þær milli stórar)
– Baka á 180°C blæstri í 15 mín eða þar til þær eru orðnar gullbrúnar
Sniðugt að gera tvöfalda uppskrift & frysta !
Einnig er hægt að nota rúsínur með súkkulaðinu eða bara rúsínur