Öllu skóflað í skál & sett í brauð hljómar eins & ofur einföld aðferð
Ég reyni að nýta afgangs hakk & grænmeti eftir taco eða annað til að nota í pítur. Að eiga afganga & blanda í skál með nóg af grænmeti & sósu tekur mig max 5 mín & ég elska það
Það sem þarf:
Pítubrauð
Hakk
Kál
Paprika
Gúrka
Vínber eða epli
Pítusósa
Rifinn ostur
Aðferð :
– Að mínu mati eru Hatting pítubrauðin í bláupokunum í frysti bestu pítubrauðin
– Ég set þau í ofninn í smá stund, mega alls ekki vera of hörð!
– Mér þykir best að skera þau í tvennt til að nýta brauðin sem best en þá færðu 2 brauð úr einu brauði
– Blanda öllu sem þú ætlar að hafa í pítunni í skál með sósu
– Skófla beint í brauðin & allir sáttir!