Uppskriftir

Nachos í airfyrer

Einfalt & mjög ferskt nachos með taco tuesday eða bara þegar manni langar í eitthvað gúrm er mjög vinsælt heima hjá mér!

Þetta einfalda nachos slær alltaf í gegn & krakkarnir elska það

Það sem þarf:
Snakk (ég nota svart Doritos)
Rifinn ostur
Sýrður rjómi
Kál
Paprika

Auðvitað hægt að bæta hverju sem er við jalapeno, tómötum, lauk til dæmis
Ég set stundum ostasósu með í líka, það er mjöög gott!

Aðferð:
– Ég set bökunarpappír í botninn á airfryernum
– Raða snakkinu í botninn
– Set smá rifinn ost yfir
– & hita á Airfry stillingu 160°c í 4-6 mín – fylgist með

– Svo tek ég snakkið, set á disk & slumpa sýrðum rjóma yfir
– Set niðurskorið Iceberg kál (besta kálið) & papriku ofan á

Þetta er svo ótrúlega gott & tekur aðeins nokkrar mín að útbúa!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *