Er eitthvað betra en volgt dúnmjúkt naan brauð með miklu smjöri & salti?
Við (lesist Frans) byrjum á að gera deigið seinni part, búum til litlar kúlur & leyfum því aðeins að hefast
& steikjum það svo á pönnu með olíu & salti
En einnig er hægt að pensla það með smjöri & hvítlauk fyrir extra
Það sem þarf:
60 gr Hrein jógúrt
2 1/2 tsk Þurrger
280 gr Hveiti
3 msk Smjör (brætt)
1 tsk Sykur
250 ml Vatn (volgt)
1 msk Olía
1 tsk Salt
Aðferð :
– Fyrst þarf að virkja þurrgerið með því að setja volgt vatn, sykur & þurrger í skál & hræra
– Jógúrtinu, hveitinu, saltinu, olíunni & þurrgerblöndunni blandað saman & hnoðað í kúlu
– Deiginu skipt í sirka 8 – 10 litlar kúlur
– Við setjum hveiti á borðið, kúlurnar á það & rakt viskastykki yfir í um klukkutíma á meðan þær hefast
– Áður en deigið er steikt á pönnu þá þarf að fletja það út með kökukefli, við stingum kökurnar með gaffli svo þær belgist síður út í hitanum á pönnunni
Hér er hægt að sjá video hvernig deigið er meðhöndlað
