Ein fljótlegasta & besta kökuuppskrift sem ég hef prufað, enda geri ég hana óspart!
Ég geri hana oft áður en ég fæ fólk í mat eða tek hana með mér í saumó & á þá bara eftir að henda henni aðeins í ofninn sem mér þykir þægilegt & flýtir fyrir
Það sem þarf:
3-4 Rauð epli
150 gr sykur
150 gr hveiti
150 gr smjör (mjúkt)
Kanill
Súkkulaði (má sleppa)
Aðferð :
– Ég byrja á því að flysja eplin, það má sleppa því en mér þykir hún betri án hýðis
– Sker eplin í bita & set í botninn á kökuforminu
– Strái vel af kanil yfir eplin svo kanillinn þekji eplin
– Helli poka af súkkulaði spænum eða dropum yfir (eða niðurskornu) ca. 200gr kannski
– Hnoða svo í höndunum sykur, hveiti & smjörið við stofu hita, set það ekki í hrærivél heldur bý til klessu úr deiginu & ríf svo klessur af deiginu yfir allt kökuformið
– Baka svo kökuna á 180°C á blæstri í 20-30 mín eða þar til deigið ofan á er orðið gullbrúnt & stökkt
Ber fram kökuna með vanilluís & karamellusósu (til sykurlaus í túpu td. í Krónunni) til að vera extra
