Uppskriftir

Butter chicken

Ég elska að geta keypt tilbúnar sósur & sparað mér tíma í eldhúsinu.
Ég hef prufað að gera Butter chicken sósu frá grunni en hef komist að því að mér þykir betra að kaupa þær tilbúnar & bæta aðeins við þær


Það sem þarf:
Kjúklingur
Laukur
Hvítlaukur
Olía / Smjör á pönnuna
Krydd
Butter chicken sósa
Hrísgrjón
Naan brauð

Aðferð:
– Ég byrja á að skera lauk í stóra bita svo það sé auðveldara að taka hann til hliðar fyrir þá sem vilja hann ekki með sósunni
– Á meðan sker ég niður kjúkling & hvítlauk
– Þegar laukurinn er orðinn mjúkur bæti ég kjúklingnum & hvítlauknum á pönnuna & steiki vel
– Sýð hrísgrjón á meðan allt mallar
-Að lokum bæti ég sósunni út á, mér þykir gott að setja smá slettu af rjóma með & krydda eftir smekk
-Ég nota mest salt, pipar, paprikukrydd, hvítlaukskrydd & hunang

Mér finnst raita, mango chutney sósa & naan brauð ómissandi með svona mat en við gerum þau sjálf til að fá þau dúnmjúk & volg með matnum en auðvitað hægt að kaupa þau tilbúin

Hér er uppskrift á naan brauðin sem við gerum

Þetta eru sósur sem ég kaupi tilbúnar í réttinn, þær fást td báðar í Krónunni

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *