Bakstur

Brún lagkaka

ATH þessa þarf að gera í hrærivél – Til eru aðrar uppskriftir af hnoðuðum

 

*Uppfærð uppskrift*

 

Hráefni

500 gr smjörlíki, mjúkt við stofuhita
650 gr sykur
4 egg
1 kg hveiti
6 msk kakó
2 tsk kanill
4 tsk negull
2 tsk matarsódi
5 dl mjólk

 

 

Aðferð

Ofninn hitaður í 180°C blástur

Smjörið og sykurinn hrært vel saman og bætið síðan eggjunum út í, einu í einu.

Þurrefnunum blandað út í og þynnt með mjólkinni.
Passa þarf að hræra ekki lengi eftir að hveitið fer út í svo kakan verði ekki seig.

Deiginu er skipt í 4 hluta eftir stærð ofnplötu
Deigið smurt á bökunarpappír og sléttið vel út
Mér þykir best að baka 2 plötur í einu
Bakað í 10-13 mínútur

Þegar allir hlutarnir eru orðnir kaldir er smjörkreminu smurt ofan á sléttu hliðina og raðað saman og skorið í kubba.

Best er að pakka hverjum kubb inn í bökunarpappír og síðan plastpoka yfir og beint inn í frysti.

Kakan er síðan tekin úr frysti og borin fram köld.

 

 

Smjörkrem

750gr smjöri
1250gr flórsykur
vanilludropar – Eftir smekk

 

Gott er að byrja á að gera helmings uppskrift af kreminu og gera síðan hinn helminginn.

Mér finnst skipta miklu máli að hafa vel af kremi á milli og geri þessvegna svona stóra smjörkrems uppskrift.

Úr þessari uppskrift koma 6 kubbar af kökum.

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *