Held að mér sé óhætt að segja að þessi uppskrift vakti hvað mest athygli þegar ég sýndi hana fyrst – þetta er bæði einfalt, eldar sig sjálft & krakkarnir elska þetta!
Það sem þarf:
2x Kjúklingabringur
Taco krydd
1x nautateningur
Salsa sósa
1/2 askja Rjómaostur
Lúka af rifinum osti
Taco vefjur
Sýrður rjómi
Aðferð:
– Kjúklingabringurnar settar heilar í eldfastmót
– Salsasósukrukka sett yfir kjúklinginn & tacokrydd (ég set vel af því)
– Álpappír settur yfir mótið & inn í ofn á 200°C blástur í klukkutíma (hefur ekki orðið seigur hjá mér)
– Fatið tekið út & kjúklingurinn rifinn niður með 2 göfflum
– Rjómaosti, rifnum osti & nautatening blandað saman við kjúklinginn
– Blandan sett inn í litlar taco vefjur & rúllað upp
– Vefjunum raðað á bökunarpappír, pensla smá olíu ofan á þær & setja gróft salt
– Setja vefjurnar inn í ofn þar til áferðin verður gullbrún
– Ég ber vefjurnar fram með sýrðum rjóma, ostasósu & stundum salati & doritos
