Við Frans prufuðum nýja uppskrift sem sló algjörlega í gegn á okkar heimili & munum við klárlega gera þennan aftur við gott tækifæri.
Þessa uppskrift er hægt að gera ofur einfalda & aðeins flóknari – þið ráðið.
Frans vildi búa til grænmetisbuffið sitt sjálfur með indverskum kryddum en það er auðvitað hægt að nota hvaða grænmetisbuff sem er.
ÞAÐ SEM ÞARF :
Nan brauð
Grænmetisbuff
Mango Chutney
Raita
AÐFERÐ :
1. Grænmetisbuffið hitað/steikt á pönnu
2. Ég setti olíu & salt á nan brauðið & inn í ofn í 5 mín á 180° & blástur
3. Borið fram með Mango Chutney& Raita
UPPSKRIFT AF GRÆNMETISBUFFI :
Soðnar linsubaunir
Laukur
Paprika
Spínat
Kóríander
Gulrætur
Panko Brauðraspur
Garam masala
Cumin
Turmerik
Koriander krydd
Salt & pipar
*Við vorum ekki með nein sérstök hlutföll & notuðum það sem var til í ísskápnum*
UPPSKRIFT AF RAITA SÓSU :
Hrein jógúrt
Gúrka skorin í bita
Lime safa
Hunang / agave sýróp
Salt
Kóríander (Má sleppa)
*Þessi færsla er ekki kostuð eða unnin í samstarfi*