Ég hef oft smakkað kókosbollu eftirrétti & átti mikið til í einn slíkan síðast þegar ég fékk fólk í mat. Ég henti því saman því sem ég átti og kom það ótrúlega vel út og ekki skemmir það fyrir hversu stuttan tíma það tekur að hrista einn slíkan fram úr erminni!
Það sem þarf ( fyrir 4 ) :
4 kókosbollur
Rjómi 500 ml
Marengsbotn
Oreo milka súkkulaði
Jarðaber
Bláber
Íssósa (sem harðnar)
Aðferð :
Kókosbollunum makað í botninn á eldföstu móti
Rjóminn þeyttur & marengsinn mulinn og blandað saman við rjómann
Rjómablöndunni makað yfir kókosbollurnar
Oreo milka súkkulaðið brytjað niður og stráð yfir rjómann
Jarðaberjum & bláberjum stráð vel yfir (hægt nota hvaða ávexti sem er)
Íssósunni svo helt yfir berin. Einnig hægt að bræða súkkulaði
Eldfastamótinu svo skellt inn í ísskáp og tekið út rétt áður en það er borið fram.
*Þessi færsla er ekki kostuð eða unnin í samstarfi*