Ég hef alltaf verið mikið fyrir súpur og þá sérstaklega humarsúpu. Ég fékk svo geðveika fiskisúpuuppskrift sem ég hef síðan notað ásamt því að breyta henni aðeins og bæta og langar mig að deila þeirri uppskrift með ykkur.
Mér hefur aldrei fundist fiskisúpa góð og finnst eflaust fólki sem þekkir mig skrítið að ég sé farin að dásama slíka súpu. En það er alls ekkert fiskibragð af þessari súpu þrátt fyrir fiskinn í henni hún er einfaldlega dásamleg!
Það sem þarf :
ca. 800 g fiskur (Þorskhnakki eða Ýsa), skorinn í ca munnbita.
Bláskel (Ekki nauðsynlegt en gefur mikið bragð)
1 rauðlaukur, saxaður smátt
1 rauður chili, saxaður smátt
1 gul paprika, skorin í bita
1 rauð paprika, skorin í bita
2 hvítlauksrif, pressuð eða söxuð
Philadelphia ostur með sweet chili
ca. 20-30 g kóríander, blöðin söxuð
Tómatpúrra
500 ml rjómi
1 L vatn
olía til steikingar
1 sk cayenne pipar
1/2 tsk engifer
1 kjötkraftur
3 msk Humarkraftur (Má sleppa)
salt & pipar
Ég keypti þennan humarkraft í Nettó & kemur hann mjög vel út með súpunni !
Aðferð :
Hvítlaukur, Rauðlaukur, chilli & paprikan skorið niður og steikt á pönnu þar til allt verður mjúkt.
Rjómaostinum, vatninu, rjómanum, tómatpúrrunni, kryddinu, kraftinum bætt við og látið sjóða í ca 5 mínútur.
Þegar allt hefur soðið saman finnst mer gott að mauka hana með töfrasprota til að fá hana ágætlega þykka og gefa henni betri áferð en það er alls ekki nauðsynlegt.
Þegar ég hef maukað hana bæti ég kóríandernum & bláskelinni við og læt hana sjóða & smakka til á meðan.
Þegar súpan hefur fengið að malla í góðan tíma og stutt í að hún verði borin fram bæti ég fisknum út í og læt hann sjóða í 1-2 mín og svo malla allt saman í ca 10 min á eftir.
*Ég ber svo súpuna fram með góðu brauði & smjöri.
*Þessi færlsa er ekki kostuð eða unnin í samstarfi*