Eftir að ég útbjó boðskortið í ferminguna hjá bróður mínum í fyrra fékk ég mikið af spurningum út í hvernig ég bjó það til sjálf. Það var ofur einfalt gert í word á nokkrum mínútum. Ég var með útfærsluna af boðskortinu á Mamie.is en á hana því miður ekki til lengur og get ekki sýnt ykkur en það kom ótrúlega vel út. Ég notaðist við eina clip art mynd í miðjum textanum ásamt því að vera með línurnar með mismunandi letri, bæði stóru, smáu og sumt í skrautskrift.
Núna fyrir skírnina fékk ég hugmynd að merkja matinn sem verður á boðstólnum með litlum miðum þar sem við verðum með mismunandi litla Fabrikkuborgara. Ég persónulega vil vita hvað er á mínum mat og fannst góð hugmynd að merkja bakkana með nafninu á borgaranum ásamt því sem er á milli.
Ég nennti ekki að standa í miklu föndri eða út klippingum og fékk þá hugmynd að setja saman mynd í litum sem við ætlum að vera með veisluna í og skrifa á hana innihaldið og prenta út til að merkja – gæti ekki verið einfaldara.
Þegar ég var að leita af formum og myndum notaðist ég við leitarorðin ,,name tag template,, og ,,Clip art,, á Google og komu allskonar hugmyndir upp. Ég var svo að skoða ennþá fleiri hugmyndir eftir að ég var búin að gera miðana fyrir veisluna og fann þá brilliant síðu fyrir allskonar svona veislu-föndur. Þessi síða er með allskonar myndum sem hægt er að nota í boðskort, skreytingar á gestabækur, kerti og til að merkja t.d. veisluborðið eins og við ætlum að gera.
Síðuna er hægt að skoða hér en ég ætla deila með ykkur nokkrum myndum sem mér fannst fallegar.
Myndirnar eru aðeins út í grátt en það er ekkert mál að birta þær aðeins í iPhoto eða í Photos t.d. í iPhone – þarf ekki að vera flókið ! 😀
Ég ætla deila hér sýnishorni af myndinni sem ég notaðist við í okkar föndur og held það sé síðan best að ég deili með ykkur skref fyrir skref hvernig ég setti textann inn á hana svo það verði sem auðveldast í útskýringum. 🙂
1. Finna mynd og vista.
2.Setja hana í símann – Ég sendi mér hana á maili.
3.Sækja forrit í appstore sem heitir WordSwag
4.Opna myndina í WordSwag & finna letur & texta
5.Vista myndina & senda sér á maili
6.Opna myndina í tölvunni og draga yfir í word skjal
7.Minnka/stækka myndina eftir stærð & formi sem hún á að vera á
8.Prenta út word skjalið & klippa til
Okkar miðar fyrir veisluborðið komu svona út en ég notaði 2 mismunandi skriftir í WordSwag.
Ég vona að þetta komi sér að góðum notum & hlakka til að sýna ykkur myndir frá veislunni <3
xx
1 athugasemd
[…] Hér er hægt að sjá hvernig ég gerði miðana á borðin & myndina á gestabókina ásamt fl… […]