Ég tók smá spjall um að skapa sínar hefðir og læra njóta yfir hátíðarnar of fékk ég mjög góð viðbrögð við því. Eins og ég talaði um þá skiptir miklu máli að finna hvað hentar manni sjálfum og eins og í öllu að þora taka af skarið og fá aðra með í gleðina finnst mér skipta miklu máli.
Desember er klárlega einn af mínum uppáhalds mánuðum en þá er einhvern veginn meiri afsökun fyrir því að fá alla vini og ættingja í að gera allskonar skemmtilegt saman. Síðustu ár hef ég verið dugleg að sanka að mér allskonar hefðum og búa til mínar eigin hefðir í minni fjölskyldu og verða árin bara betri og betri. Mér fannst þetta sérstaklega nauðsynlegt fyrir mig sjálfa þegar foreldrar mínir skildu fyrir nokkrum árum og ég missti afa minn sem var alltaf með okkur á jólunum. Næstu jól á eftir fannst mér aldrei eins og jólin væru búin, það vantaði alltaf eitthvað.
En með árunum þá auðvitað þroskaðist ég og lærði að njóta og vera ánægð með það sem ég hef hverju sinni. En ég þarf reglulega að vera dugleg að minna mig á hversu heppin ég sé með fólkið í kringum mig og að njóta tímans með þeim því maður veit aldrei hvað gerist á morgun eða á næstu árum.
Að skapa minningar skiptir mig mjög miklu máli og þá með þeim sem standa mér næst og legg ég mikið upp úr því að gera eitthvað með mínum nánustu í staðinn fyrir að spá of mikið í hverju ég ætla vera á aðfangadag, gjöfunum, matnum og skreytingunum. Það er auðvitað mjög misjafn en það klikkar ekki að ég muni ekki hvað ég fékk frá hverjum síðustu jól en minningarnar úr spilakvöldunum, bakstrinum eða öðru skemmtilegu lifa mikið lengur enda það sem skiptir mig máli.
Mér finnst mjög skemmtilegt að heyra mismunandi jólahefðir og bæði fá hugmyndir frá öðrum og deila mínum. Ástæðan fyrir þessari færslu er sú að mig langar að deila okkar hefðum og að fá ykkar komment hér undir með ykkar hefðum ef þið lumið á einhverjum góðum! 😀
Desember
Aðventukrans & skreyta heima 1. í aðventu
Skreytum jólatréð 3. í aðventu
Skreytum piparkökur með fjölskyldunni & hlustum á jólalög
Skera út laufabrauð
Baka lagköku & fleiri sortir ef ég hef tíma ! 😀
Spilakvöld
Litlu jól með vinkonum mínum
Senda jólakort
Þorláksmessa
Labba Laugaveginn & fá sér kakó
Fara í kirkjugarðinn til afa minna
Keyra út pakka
Aðfangadagur
Halda jólin heima hjá okkur fjölskyldunni
Allir fá náttföt í skóinn
Horfa saman á jólamynd
Borða kl. 18:00 á aðfangadag
Möndlugjöf
Lesa jólakortin eftir að allir eru komnir í kósý og pakkaflóðið búið
Horfa á jólamynd
Milli jóla & nýárs
Jólaboð
Skíði / Sleða
Spilakvöld
Horfa á jólamyndir
Væri gaman að heyra ykkar hefðir ! <3