Ég fékk margar beiðnir um að sýna aftur ferðatöskuna og hvaða box við vorum með í henni eftir að ég leyfði ykkur að sjá þegar við fórum til Ítalíu fyrr í sumar. Ég ákvað því að sýna ykkur aftur á Snapchat hvernig ég pakkaði fyrir London. Ég tók myndir af töskunum með boxunum í svo hægt sé að flétta þessari færslu upp og skoða þegar ykkur hentar.
Boxin sem ég er með eru þau sömu og ég er með í skápunum hjá okkur undir allskonar dót bæði nærföt, sokka, bleyjur og annað. Einnig er ég með sömu týpu í skápnum inni í forstofu og inni á baði. Kosturinn við að nota þessi box í töskuna er sá að hægt er að renna þeim í sundur og þá fer ekkert fyrir þeim.
Boxin heita SKUBB og eru úr IKEA en til eru nokkrar tegundir af boxum úr SKUBB línunni. Þau sem ég er með í fataskápunum okkar og ferðatöksunum eru þessi hér.
*Þessi færlsa er ekki kostuð eða unnin í samstarfi*