Mig er lengi búið að langa búa til svona pizzu en einhvern veginn er maður svo vanafastur. Við borðum mikið mexikanskan mat og erum við þá mjög oft með það sama og fínt að breyta til. Bæði þá breyta til í pizzu-málum og mexikó mat.
Þetta er mjög einfalt og gerðum við nánast bara eðlu á pizzuna. Við smurðum salsasósu í staðinn fyrir pizzasósu á botninn, settum slettur af ostasósu ofan á, rifinn ost, rjómaosta klípur hér og þar, Kjúkling, svartan pipar og jalapeno bita Frans megin.
Þetta kom ótrúlega vel út og var geðveikt að vera með heita ostasósu og svart Doritos með og setja ofan á þegar pizzan var komin úr ofninum. Ég reyndar bætti smá kóríander hjá mér líka! Svo er auðvitað hægt að setja bara hvað sem er ofan á. Mig langar svolítið að prufa setja hakk á næst ! 😀
Það sem við notuðum:
Pizzabotn
Salsa
ostasósa
Rifinn ostur
Rjómaostur
Kjúklingur
Svartur pipar
Jalapeno
*Þessi færlsa er ekki kostuð eða unnin í samstarfi*