Þessa gömlu uppskrift fékk ég hjá mömmu vinkonu minnar þegar ég var krakki & hef bakað það í mörg ár með smá tvisti en það er mjög einfalt. Eina sem þarf að passa er að þeyta eggin & sykurinn mjög vel í hrærivél eða með handþeytara.
2 egg
2 dl sykur
3 dl hveiti
1/2 dl af olíu eða brætt smjör
1/2 dl mjólk
2 tsk vanillusykur / vanilludropar
1-2 tsk. kanill
2 tsk. lyftiduft eða matarsódi
2 -3 vel þroskaðir bananar
1-2 tsk kókosmjöl (má sleppa)
Ég byrja á því að hræra saman egg og sykur þangað til það verður létt og ljóst. Síðan bæti ég restinni við og blanda öllu vel saman. Ég elska kökuformið mitt úr Söstrene Grene en ég læt alltaf smjörpappír í botninn og helli síðan deiginu í formið. Þá þarf ekkert að smyrja formið og ekki vesen að ná brauðinu úr. Ég baka brauðið á 180° á blæstri í ca 40-60 mín. Best er að láta brauðið kólna í ca 10 – 15 mín svo það detti ekki í sundur. Ég ber brauðið fram með smjöri og osti.
Ég set smá af haframjöl ofan á brauðið áður en ég set það í ofninn. Finnst það girnilegra með haframjöl ofan á þegar ég ber það fram.
*Þessi færlsa er ekki kostuð eða unnin í samstarfi*